Fotbolti.net
12.05.17 - 12:30
Magnús Már Einarsson

Raggi P í Hött (Staðfest)

Raggi í leik í Pepsi-deildinni í fyrra.

Raggi í leik í Pepsi-deildinni í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Höttur hefur fengið öflugan liðsstyrk fyrir 2. deildina í sumar en miðjumaðurinn Ragnar Pétursson er kominn til félagsins á láni frá Þrótti R.

Ragnar er uppalinn hjá Hetti en hann fór með liðinu upp úr 2. deildinni 2011 og lék með því í 1. deild ári síðar.
Í kjölfarið lék Ragnar með ÍBV eitt tímabil áður en hann gekk til liðs við Þrótt.

Í fyrra spilaði Ragnar 14 leiki með Þrótti í Pepsi-deildinni áður en hann fór út í nám til Slóvakíu.

Ragnar hefur verið í námi ytra í vetur en hann mun nú styrkja Hattarmenn fyrir átökin í sumar.

Höttur tapaði 4-1 gegn Víði Garði í 1. umferð í 2. deildinni en liðið mætir KV í 2. umferðinni á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.