12.05.17 - 17:15
Magnús Már Einarsson
Sjö nýir leikmenn í Vængi Júpíters (Staðfest)

Magnús Pétur Bjarnason (til hægri) er genginn til liðs við Vængina.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Vængir Júpíters hafa styrkt sig fyrir komandi átök í 3. deildinni með sjö nýjum leikmönnum.
Þeir Tumi Guðjónsson, Tryggvi Magnússon, Magnús Pétur Bjarnason, Hallvarður Óskar Sigurðarson og Jónas Breki Svavarsson koma allir frá Fjölni.
Tumi, Hallvarður og Jónas stigu sín fyrstu skref í meistaraflokk Fjölnis í vetur og eru ennþá gjaldgengir í 2.flokk Fjölnis. Einnig var Hallvarður á úrtökum u-19 ára landsliðsins í vetur.
Tryggvi spilaði sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk Fjölnis í fyrra og spilaði einnig í vetur fyrir meistaraflokkinn. Tryggvi var bikarmeistari með 2.flokk Fjölnis á síðasta ári.
Magnús Pétur á leiki í Pepsi-deildinni fyrir Fjölni en hann hefur spilað fyrir Ægi og Vestra síðustu ári. Magnús á 12 leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Alexander Bjarki Rúnarsson og Daníel Rögnvaldsson koma báðir frá Víði en þeir unnu B-deild Lengjubikarsins með liðinu á dögunum. Alexander kom einnig við sögu í 4-1 sigri Víðis á Hetti í opnunarleik 2.deildar þar sem hann skoraði eitt mark. Daníel á 60 meistaraflokksleiki á ferlinum og hefur skorað í þeim 30 mörk.
„Allir þessir leikmenn eru komnir leikheimild fyrir fyrsta leik Vængja gegn Kára á laugardaginn. Við bjóðum þá velkomna í Vængi Júpíters,\" segir í fréttatilkynningu frá Vængjunum.