12.05.18 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sænskur sóknarmaður í Njarðvík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njarðvíkingar hafa samið við sænskan strák að nafni Pontus Gitselov.
Á vefsíðunni Transfermarkt er Pontus lýst sem 22 ára gömlum sóknarmanni.
Hann kemur úr háskóla í Bandaríkjunum, var í sama háskóla og Helgi Þór Jónsson, sem skoraði þriðja mark Njarðvíkinga í sigrinum á Leikni Reykjavík í gær.

„Það eru allir með sína rullu í liðinu, hvort hún sé stór eða lítil,\" sagði Rafn Markús Vilbergsson, þjálfari Njarðvíkur í viðtali við Fótbolta.net eftir sigurinn í Breiðholtinu.
Aðspurður sagðist Rafn ekki ætla að styrkja hópinn meira.
„Við erum með frábæran hóp og sterka liðsheild, það skiptir máli fyrir okkur,\" sagði hann.