12.06.17 - 23:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bryngeir Torfason rekinn frá Víði (Staðfest)

Látinn fjúka.

Mynd: Fótbolti.net - Vilbogi M. Einarsson

Knattspyrnufélagið Víðir Garði hefur ákveðið að reka Bryngeir Torfason úr starfi þjálfara meistaraflokks.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Víði í kvöld.

„Knattspyrnufélagið Víðir hefur ákveðið að slíta samstarfi við Bryngeir Torfason þjálfara liðsins frá og með deginum í dag, 12. júní.2017,\" segir í tilkynningunni.
„Sigurður Elíasson aðstoðarþjálfari Víðis tekur tímabundið að sér þjálfun liðsins en leit að eftirmanni Bryngeirs er þegar hafin.\"
„Knattspyrnufélagið Víðir þakkar Bryngeiri samstarfið og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.\"
Bryngeir tók við Víði fyrir síðasta tímabil af Tommy Nielsen.
Bryngeir hefur mikla reynslu í þjáflun yngri leikmanna og hefur UEFA A þjálfaragráðu. Hann hefur þjálfað yngri flokka hjá Breiðablik, Fjölni og Fylki, KR og HK með góðum árangri. Bryngeir þjálfaði Reyni Sandgerði sumarið 2008. Hann tók einnig við tímabundinni þjálfun HK ásamt Tryggva Guðmundssyni árið 2013.
Víðir er í fimmta sæti 2. deildar karla með átta stig eftir sex leiki.