Fotbolti.net
12.06.17 - 22:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Valbuena genginn í raðir Fenerbache (Staðfest)

Valbuena fékk góðar móttökur.

Valbuena fékk góðar móttökur.

Canon

Mynd: Getty Images

Tyrkneska liðið Fenerbache hefur gengið frá kaupum á miðvallarleikmanninum Mathieu Valbuena frá Lyon í Frakklandi.

Hinn 32 ára gamli Valbuena mun skrifa undir samning við Fenerbache þegar félagsskiptaglugginn opnar 17. júní.

Talið er að tyrkneska félagið borgi 3-4 milljónir evra fyrir hann.
Fenerbache ætlar að styrkja sig fyrir næsta tímabil eftir að hafa þurft að sætta sig við þriðja sætið í tyrknesku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Valbuena missti sæti sitt hjá Lyon eftir að Memphis Depay kom frá Manchester United og hann hefur nú ákveðið að söðla um.

Hann er mættur til Tyrklands, en hann fékk góðar móttökur.

Départ pour Istanbul ... 👉🏼 🇹🇷 pic.twitter.com/CdQ02TJNqN

— Mathieu Valbuena (@MathieuVal8) June 12, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.