Fotbolti.net
12.06.18 - 10:51
Ingólfur Páll Ingólfsson

Freddie Ljungberg aftur til Arsenal (Staðfest)

Freddie Ljungberg aftur til Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur tilkynnt að fyrrum miðjumaður liðsins, Freddie Ljungberg muni snúa aftur til félagsins sem aðalþjálfari U23 ára liðs Arsenal.

Ljungberg þjálfaði U15 ára tímabilið 2016-2017 áður en hann fór til Wolfsburg og varð aðstoðarmaður Andries Jonker í akademíu félagsins.

Ljungberg mun vinna undir stjórn Per Mertesacker, sem tekur við sem yfirmaður akademíu Arsenal.
„Ég er himinlifandi að vera að koma aftur til félagsins. Arsenal hefur alltaf verið sérstakur staður fyrir mig og ég er mjög spenntur fyrir þessu tækifæri að vinna með U23 ára liðinu,\" sagði Ljungberg.

„ Ég hlakka til að vinna með þessum hæfileikaríku ungu leikmönnum hjá félaginu. Ég þekki marga þeirra vel og mun leggja hart að mér til að hjálpa þeim að þróa leik sinn og verða bestu leikmenn og manneskjur sem þeir geta verið.\"

Ljungberg gekk til liðs við Arsenal árið 1998 og var hjá félaginu í níu tímabil, sigraði ensku úrvalsdeildina tvisvar og FA bikarinn þrisvar auk þess að vera hluti af hópnum sem fór í gegnum heilt tímabil án taps.

Welcome home, @freddie 🔴 https://t.co/2Js4IGKmBF

— Arsenal FC (@Arsenal) June 12, 2018


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.