Fotbolti.net
12.06.18 - 11:50
Ingólfur Páll Ingólfsson

Josh Murphy til Cardiff City (Staðfest)

Murphy verður á ferð og flugi í bláu á næsta tímabili.

Murphy verður á ferð og flugi í bláu á næsta tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

Aron Einar hefur fengið nýjan liðsfélaga en lið hans Cardiff City var nú rétt í þessu að tilkynna um kaup á Josh Murphy frá Norwich City.
Josh Murphy hefur skrifað undir fjögurra ára samning við liðið. Murphy er kantmaður sem ólst upp hjá Kanarífuglunum í Norwich og spilaði fyrsta leik sinn fyrir félagið tímabilið 2013/2014.

Þessi 23 ára gamli leikmaður hefur alls skorað 20 mörk í 108 leikjum fyrir Norwich og eru fyrstu kaup sumarsins hjá Neil Warnock. Til gamans má geta að tvíburabróðir hans spilar fyrir Newcastle.

„Josh er leikmaður sem ég hef fylgst með í nokkur ár núna og hann gerir mig alltaf spenntan þegar hann hleypur með boltann,\" sagði Neil Warnock.

„Ég held að hann sé á réttum aldri núna og á sín bestu ár eftir. Hann getur átt mikilvægan þátt í að hjálpa okkur að forðast fall í ensku úrvalsdeildinni og ég veit að hann hlakkar til að takast á við verkefnið. Það hefur verið í forgangi hjá mér að ná í leikmanninn.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.