Fotbolti.net
12.06.18 - 16:16
Ingólfur Páll Ingólfsson

Ramadan Sobhi til Huddersfield (Staðfest)

Ramadan Sobhi til Huddersfield (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ramadan Sobhi hefur gengið til liðs við Huddersfield Town og skrifar undir þriggja ára samning.
Sobhi fékk leyfi til þess að yfirgefa æfingarsvæði egypska landsliðsins til þess að ganga frá samningi sínum við Huddersfield frá Stoke City sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á liðnu tímabili.

Sobhi er réttfættur vængmaður sem getur spilað báðu megin á vellinum auk þess að spila í holunni fyrir aftan framherja.

Sobhi á yfir 40 úrvalsdeildarleiki eftir tvö tímabil hjá Stoke City. Þessi 21. árs gamli leikmaður mun því spila áfram í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

David Wagner, knattspyrnustjóri Huddersfield er ánægður með að fá Sobhi til liðs við félagið

„Ég er mjög ánægður með að geta boðið ramadan Sobhi velkominn til Huddersfield Town. Hann er hæfileikaríkur og hefur afrekað margt þrátt fyrir að vera aðeins 21. árs gamall,\" sagði Wagner.

„Rétt eins og Jonas Lössl, Elias Kachunga og Laurent Depoitre gerðu kemur hann til liðs við okkur eftir erfitt tímabil. Hann hefur hæfileika sem við leituðumst eftir.\"

„Hann er hæfileikaríkur, beinskeittur og mjög fljótur að hugsa. Hann hefur ennþá pláss til þess að bæta sig sem leikmaður sem er spennandi.\"
Ramadan Sobhi til Huddersfield (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.