12.06.18 - 12:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Uwe Rösler nýr þjálfari Arnórs Ingva (Staðfest)

Mynd: Malmö FF

Mynd: Malmö FF
Arnór Ingvi hefur fengið nýjan þjálfara því að Uwe Rösler hefur verið tilkynntur sem nýr þjálfari Malmö FF.
Uwe Rösler hefur skrifað undir samning hjá Malmö FF til ársins 2020 og mun stýra sinni fyrstu æfingu fyrir félagið næstkomandi fimmtudag.
Uwe Rösler er 49 ára þjóðverji. Á ferli sínum sem leikmaður spilaði hann bæði í Þýskalandi auk Englands þar sem hann lék meðal annars með Manchester City. Hann hefur þjálfað bæði í Noregi sem og á Englandi og verið við stjórnvölinn í 457 leikjum á 13 ára þjálfaraferli.
Hann þjálfaði Lillestrøm SK, Viking FK og Molde FK áður en hann fór til Englands og þjálfaði meðal annars Brentford FC, Wigan Athletic FC, Leeds United FC og Fleetwood Town FC.