Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 22:44
Brynjar Ingi Erluson
Undanúrslitin í Mjólkurbikar kvenna klár - Meistararnir mæta FH
Valur tekur á móti FH
Valur tekur á móti FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dregið var í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna í Bikarkvöldi á RÚV2 í kvöld.

Ríkjandi bikarmeistarar Vals mæta FH á Hlíðarenda á meðan Íslandsmeistarar Breiðabliks taka á móti ÍBV á Kópavogsvelli.

Leikirnir fara fram 30. og 31. júlí næstkomandi, en úrslitaleikurinn er spilaður á Laugardalsvelli laugardaginn 16. ágúst.

Valur hefur fimmtán sinnum unnið bikarinn, oftast allra liða, en Breiðablik kemur næst á eftir með þrettán titla. ÍBV hefur tvisvar sinnum unnið bikarinn, en FH aldrei unnið.

Leikirnir:
Valur - FH
Breiðablik - ÍBV
Athugasemdir
banner
banner