Tveimur fyrstu leikjunum á HM er lokið. Mexíkó vann Suður-Afríku í opnunarleiknum þar sem fleiri rauð spjöld voru gefin en mörk skoruð.
Suður-Kórea vann svo frækinn endurkomusigur gegn Tékklandi en þar mælum við sérstaklega með marki keppninnar til þessa, frábærum mjaðmahreyfingum In-Beom Hwang sem kom Tékklandi alveg út af sporinu.
In-Beom Hwang sem lék á varnarmann og markvörð Tékka og skoraði með laglegu skoti.

Suður-Kórea 2 - 1 Tékkland
0-1 Ladislav Krejci ('59 )
1-1 In-Beom Hwang ('67 )
2-1 Oh Hyun-Gyu ('80 )
Mexíkó 2 - 0 Suður-Afríka
1-0 Julian Quinones ('9 )
2-0 Raul Jimenez ('67 )
Rautt spjald: Yaya Sithole, Suður-Afríka ('49) Themba Zwane, Suður-Afríka ('84) Cesar Montes, Mexíkó ('90)
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!