Fotbolti.net
12.07.17 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Ægir fær þrjá nýja leikmenn (Staðfest)

Paul Bodgan Nicolescu er kominn aftur til Ægis.

Paul Bodgan Nicolescu er kominn aftur til Ægis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Ægir fær góðan liðsstyrk þegar félagaskiptaglugginn opnar á laugardaginn.

Ásgrímur Þór Bjarnason, Darko Matejic og Paul Bogdan Nicolescu fá þá allir leikheimild með liðinu.
Ásgrímur er ungur miðjumaður sem kemur á láni frá Fjölni en hann var á láni hjá Selfossi fyrr í sumar þar sem hann spilaði einn leik í Inkasso-deildinni.

Darko og Nicolescu hafa báðir leikið áður með Ægi. Darko er framherji sem skoraði ellefu mörk með Ægi í 2. deildinni árið 2013 og fjögur mörk árið eftir.

Nicolescu lék með Ægi síðari hluta sumars í 2. deildinni í fyrra en árið 2015 hjálpaði hann Leikni Fáskrúðsfirði að komast upp úr 2. deildinni.

Ægir er í 7. sæti í 3. deildinni en einungis tvö stig eru í fallsvæðið.
Darko Matejic er kominn aftur til Ægis.

Darko Matejic er kominn aftur til Ægis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.