12.07.17 - 12:30
Magnús Már Einarsson
Chelsea lánar Loftus-Cheek til Crystal Palace (Staðfest)

Mynd: Twitter

Mynd: Twitter
Crystal Palace hefur fengið miðjumanninn Ruben Loftus-Cheek á láni frá Chelsea út tímabilið.
Hinn 22 ára gamli Loftus-Cheek kom við sögu í þremur deildarleikjum þegar Chelsea varð enskur meistari á síðasta tímabili.
Samtals hefur Loftus-Cheek leikið 32 leiki með Chelsea en hann er fyrsti leikmaðurinn sem Frank de Boer fær til Crystal Palace eftir að hann tók við liðinu í síðasta mánuði.

„Palace er með mjög sterkt lið og ég vil vera hluti af því á þessu tímabili,\" sagði Loftus-Cheek.
Samkvæmt Guardian er Crystal Palace nálægt því að krækja í varnarleikmanninn Jairo Riedewald frá Ajax. De Boer gaf Riedewald fyrst tækifæri með aðalliði Ajax árið 2013.