Fotbolti.net
12.07.17 - 14:37
Elvar Geir Magnússon

Dani Alves til PSG (Staðfest)

Dani Alves er kominn til Frakklands.

Dani Alves er kominn til Frakklands.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City situr eftir með sárt ennið eftir að Dani Alves, brasilíski bakvörðurinn reyndi, gekk í raðir Paris St-Germain.

Allt virtist stefna í að City myndi fá þennan 34 ára leikmann en á endanum valdi Alves að ganga í raðir PSG sem bauð honum 230 þúsund pund í vikulaun. City gat ekki jafnað það tilboð.
Alves var á frjálsri sölu eftir að samningi hans við Ítalíumeistara Juventus var rift eftir eitt tímabil á Ítalíu.

Kyle Walker, bakvörður Tottenham, er enn fyrsti kostur City sem hægri bakvörður. Félagið er með í forgangi að styrkja þá stöðu eftir að Pablo Zabaleta og Bacary Sagna fóru.

Á mánudaginn heldur City til Bandaríkjanna þar sem leikið verður gegn Manchester United, Real Madrid og Tottenham í æfingaleikjum.

#BemvindoDaniAlves 🇧🇷 pic.twitter.com/t2HJgYYGV4

— PSG English (@PSG_English) July 12, 2017
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.