12.07.17 - 17:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Douglas Costa farinn til Juventus (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíski kantmaðurinn Douglas Costa er genginn í raðir Juventus frá Bayern München.
Hann kemur til Juventus á láni fyrst um sinn.
Talið er að það kosti Juventus 6 milljónir evra að hafa Costa á láni á tímabilinu, en þeir geta síðan keypt hann á 40 milljónir evra.
Costa, sem er 26 ára gamall, fór til Bayern frá Shakhtar Donetsk árið 2015. Hann skoraði 14 mörk í 77 leikjum fyrir Bayern.
Bayern fékk í gær James Rodriguez frá Real Madrid og því var Costa leyft að fara til ítölsku meistaranna.

⚡⚪⚫👀 #OneMore
— JuventusFC (@juventusfcen) July 12, 2017
👉 https://t.co/lzFGl9ph82 pic.twitter.com/yXGIlA27jm