12.07.17 - 19:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Januzaj til Real Sociedad (Staðfest)

Mynd: Twitter

Mynd: Twitter
Adan Januzaj er farinn frá Manchester United til Real Sociedad, en þetta var staðfest núna fyrir stuttu síðan.
Spænska félagið borgar 11 milljónir evra fyrir Januzaj.
Hinn 22 ára gamli Januzaj gekkst undir læknisskoðun í dag og skrifaði í kjölfarið undir fimm ára samning.
Spænska félagið borgar 11 milljónir evra fyrir Januzaj.
Hinn 22 ára gamli Januzaj gekkst undir læknisskoðun í dag og skrifaði í kjölfarið undir fimm ára samning.
Januzaj var á láni hjá Sunderland á síðustu leiktíð þar sem hann spilaði 25 leiki án þess að skora mark. Hann náði ekki að hjálpa liðinu í að halda sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni.
Eftir að hafa skotist fram á sjónarsviðið með United árið 2013, þá undir stjórn David Moyes hefur Januzaj átt erfitt uppdráttar. Hann var talinn einn af efnilegustu leikmönnum heims á þeim tíma, en hann hefur ekki náð að fylgja því eftir.
Hann skrifaði fallega kveðju til stuðningsmann Manchester United, en hér neðst má sjá hana.

Good luck to @AdnanJanuzaj, who has left #MUFC to join Real Sociedad. pic.twitter.com/K2SSIXj9e8
— Manchester United (@ManUtd) July 12, 2017
I will always have love for @ManUtd pic.twitter.com/mCdC2giPsF
— Adnan Januzaj (@adnanjanuzaj) July 12, 2017