Fotbolti.net
12.07.17 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Olivier Ntcham frá Man City til Celtic (Staðfest)

Ntcham í leik með Genoa.

Ntcham í leik með Genoa.

Canon

Mynd: Getty Images

Celtic í Glasgow hefur krækt í franska U21-landsliðsmanninn Olivier Ntcham frá Manchester City. Þessi 21 árs leikmaður hefur verið hjá Genoa á Ítalíu á lánssamningi síðustu tvö tímabil.
Ntcham spilar sem leikstjórnandi á miðju og skoraði þrjú mörk í 37 leikjum í ítölsku A-deildinni.

Hann hefur leikið fyrir öll yngri landslið Frakklands.

„Ég hlakka mest til að mæta grönnunum í Rangers og spila í Meistaradeildinni,\" sagði Ntcham við heimasíðu Celtic.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem Brendan Rodgers kaupir til Celtic en áður hafði hann krækt í Jonny Hayes frá Aberdeen og Kundai Benyu frá Ipswich Town.

Celtic hefur sex sinnum í röð orðið skoskur meistari en alls hefur félagið fengið þá nafnbót 48 sinnum. Erkifjendurnir í Rangers eru með 54 meistaratitla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.