Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 12. júlí 2018 13:00
Magnús Már Einarsson
Fulham fær annan frá Nice (Staðfest)
Fulham fær liðsstyrk.
Fulham fær liðsstyrk.
Mynd: Getty Images
Eins og kom fram í morgun þá hefur Fulham keypt miðjumanninn öfluga Jean Michael Seri frá Nice í Frakklandi.

Fulham ákvað að taka tvennutilboð því félagið hefur nú einnig greint frá kaupum á Maxime Le Marchand frá Nice.

Maxime er 28 ára gamall varnarmaður en hann á 81 leik að baki með Nice.

Báðir leikmennirnir eiga að styrkja Fulham fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni en liðið komst upp í vor.

Sky Sports segir að samanlagt kaupverð fyrir þá félaga hljóði upp á 30 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner