Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 12. júlí 2018 11:00
Magnús Már Einarsson
Kenedy til Newcastle á láni (Staðfest)
Aftur til Newcastle.
Aftur til Newcastle.
Mynd: Getty Images
Newcastle hefur fengið Kenedy á láni frá Chelsea en samningurinn gildir í eitt ár.

Kenedy er 22 ára gamall brasilískur kantmaður en hann var á láni hjá Newcastle síðari hlutann á síðasta tímabili.

Kenedy sýndi góða takta með Newcastle og hjálpaði liðinu að klifra upp töfluna síðari hluta tímabilsins.

Rafael Benítez, stjóri Newcastle, hefur nú sannfært hann um að taka annað tímabil í norður Englandi.

Kenedy er mættur til Írlands til móts við liðsfélaga sína í Newcastle en liðið er þar í æfingaferð.

Athugasemdir
banner
banner
banner