Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 12. júlí 2019 17:00
Magnús Már Einarsson
Linda Eshun í ÍR (Staðfest)
Linda í leik með Aftureldingu á dögunum.
Linda í leik með Aftureldingu á dögunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Botnlið ÍR í Inkasso-deild kvenna hefur fengið liðsstyrk en varnarmaðurinn Linda Eshun er gengin til liðs við félagið.

Linda kemur frá Aftureldingu þar sem hún spilaði tvo leiki fyrri hluta tímabils.

Linda, sem er frá Gana, var áður á mála hjá Grindavík en hún spilaði í Pepsi-deildinni 2017 og 2018.

ÍR er án stiga í Inkasso-deild kvenna en liðið mætir Þrótti R. í kvöld og þar gæti Linda spilað sinn fyrsta leik.
Athugasemdir
banner
banner