Portúgalski knattspyrnustjórinn Nuno Espirito Santo er við það að framlengja samning sinn við Wolves. Þetta kemur fram í ensku miðlunum í dag.
Espirito Santo hefur gert frábæra hluti síðan hann samdi við liðið árið 2017.
Hann vann ensku B-deildina á fyrsta tímabili og þá hafnaði liðið í 7. sæti í ensku úrvalsdeildinni tímabilið á eftir og komst í undanúrslit enska bikarsins.
Wolves er í 8. sæti deildarinnar eins og staðan er núna og í baráttu um Evrópudeildarsæti. Þá er liðið komið í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar og á góðan möguleika er liðið fær Olympiakos í heimsókn í seinni leiknum.
Samkvæmt Mirror er Espirito Santo við það að framlengja samning sinn við félagið en hann mun gera þriggja ára samning.
Athugasemdir