Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 12. júlí 2020 18:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho: Þessi barátta kom frá hjartanu
Mynd: Getty Images
„Þessi leikur var mjög taktískur," sagði Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Tottenham, eftir 2-1 sigur gegn nágrönnunum og erkifjendunum í Arsenal.

„Mikel Arteta er búinn að finna leið fyrir þá til að spila, til að vera stöðugir og til að bæta sig. Við þurftum að aðlagast að þeim og við gerðum það mjög vel."

Tottenham lenti 1-0 undir, en jafnaði fljótlega. Toby Alderweireld skoraði svo sigurmarkið þegar tíu mínútur voru eftir.

„Ég held að hafi enginn hugsað út í það á meðan leiknum stóð, ekki einu sinni ég, að þeir fengu 48 fleiri klukkustundir til að hvíla. Þetta var erfitt en þessi barátta kom frá hjartanu."

„Við erum mjög ánægðir því við gerðum stuðningsmennina ánægða. Við erum ánægðir því við erum enn að berjast um Evrópusæti."
Athugasemdir
banner
banner
banner