Fotbolti.net
12.07.26 - 12:52
Brynjar Ingi Erluson

Burnley að missa annan lykilmann

Ugochukwu er á leið til Galatasaray

Ugochukwu er á leið til Galatasaray

Canon

Mynd: EPA

Franski miðjumaðurinn Lesley Ugochukwu er á leið til Galatasaray frá föllnu liði Burnley.
Burnley er að missa bestu leikmenn sína frá félaginu eftir að hafa fallið úr ensku úrvalsdeildinni í vor.

Loum Tchaouna samdi við Coventry City í gær og þá er Jaidon Anthony farinn til Brentford.

Næstur út er Ugochukwu sem er 22 ára varnarsinnaður miðjumaður, en hann spilaði 35 deildarleiki með Burnley á síðustu leiktíð.

Hann er á leið til Galatasaray í Tyrklandi en félagið greiðir um 25 milljónir punda fyrir hann.

Samkvæmt Fabrizio Romano mun hann skrifa undir langtímasamning á næstu dögum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.