Lárus Orri: Alltaf í sama helvítis viðtalinu
Auglýsing

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
ÍA tapaði gegn KA í Bestu deildinni í kvöld eftir mikla dramatík. Þetta var fjórði tapleikur liðsins í röð og liðið er í fallbaráttu. Fótbolti.net ræddi við Lárus Orra Sigurðsson, þjálfara ÍA, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: KA 3 - 2 ÍA
„Þetta var sama sagan. Ég held að ég sé alltaf í sama helvítis viðtalinu. Við erum betri aðilinn í leiknum, þetta er í þriðja skiptið í sumar sem við töpum niður tveggja marka forystu. Enn einn leikurinn sem við eigum miklu fleiri færi en andstæðingurinn en nýtum ekki okkar færi," sagði Lárus Orri.
„Ég get ekki kallað fyrsta markið þeirra færi. Annað markið, krossinn, alls ekki gott, ekki gott færi endilega. Þetta virðist vera sama sagan. Þetta verður að stoppa."
Hvernig komið þið ykkur upp úr þessu?
„Það er ein leið. Það þýðir ekkert að vorkenna sér, ekki að fara í eitthvað volæði. Það er enginn sem gerði okkur þetta. Við erum sjálfir búnir að koma okkur í þessa stöðu. Við erum komnir í þá einföldu stöðu að vera komnir í fallbaráttu. Þangað til við erum búnir að díla við það verður ekki talað um annað en að við erum í fallbaráttu. Eina leiðin út úr því er að menn standi saman og ná einhverjum stigum heim," sagði Lárus Orri.
„Það er hörku vinna framundan hjá okkur. Það eru átta dagar í næsta leik. Við þurfum að nota það vel og mæta klárir í næsta leik."