Fotbolti.net
12.08.16 - 12:13
Elvar Geir Magnússon

Januzaj lánaður til Sunderland (Staðfest)

Januzaj var lánaður til Dortmund á síðasta tímabili.

Januzaj var lánaður til Dortmund á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

David Moyes, knattspyrnustjóri Sunderland, hefur staðfest að Adnan Januzaj spili með liðinu á lánssamningi út tímabilið.

Sögusagnir voru um að Januzaj vildi losna alfarið frá Manchester United en United er ekki tilbúið að láta belgíska landsliðsmanninn fara alveg strax.
Það er rík hefð fyrir því að Manchester United láti leikmenn fara til Sunderland en á dögunum fóru varnarmennirnir Paddy McNair og Donald Love þessa þekktu leið.

Januzaj var talinn einn efnilegasti leikmaður Evrópu fyrir nokkrum árum en hefur ekki náð að taka þær framfarir sem vonast var eftir. Hann var lánaður til Borussia Dortmund á síðasta tímabili en náði ekki að vinna sér inn sæti í liðinu.

Sunderland heimsækir Manchester City á morgun í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.