12.08.16 - 21:52
Ívan Guðjón Baldursson
Messi hættur við að hætta með landsliðinu (Staðfest)

Messi í úrslitaleiknum gegn Síle.

Mynd: Getty Images

Messi í úrslitaleiknum gegn Síle.

Mynd: Getty Images
Lionel Messi tilkynnti það eftir Copa America í sumar að hann væri búinn að spila sinn síðasta landsleik fyrir Argentínu.
Messi sagði ástæðuna fyrir því að honum liði eins og hann væri búinn að gera allt sem hann gæti mögulega gert fyrir landsliðið og ætlaði framvegis að einbeita sér að Barcelona.

Messi hefur tapað þrisvar sinnum í úrslitum með Argentínu á síðustu þremur árum, en landsliðið vann þó Ólympíuleikana 2008 með Messi í lykilhlutverki.
„Það er nóg af vandamálum í argentínskri knattspyrnu, ég vil ekki skapa annað vandamál, ég vil ekki valda neinum skaða.\" sagði Messi.
„Það fóru margar hugsanir í gegnum hausinn eftir tapið í úrslitaleiknum og ég var ekki í nægilega góðu jafnvægi þegar ég sagðist vera hættur. Ég elska landið og treyjuna og mun klæðast henni með stolti.\"