Fotbolti.net
12.08.17 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Guillermo Varela farinn frá Man Utd (Staðfest)

Guillermo Varela.

Guillermo Varela.

Canon

Mynd: Getty Images

Guillermo Varela hefur yfirgefið Manchester United. Hann er farinn aftur í uppeldisfélag sitt, Penarol í Úrúgvæ.

Hinn 24 ára gamli Varela varði síðasta tímabili á láni hjá Frankfurt í Þýskalandi, þar sem hann kom við sögu í 11 leikjum.
Hann lenti í vandræðum undir lok síðasta tímabils hjá Frankfurt. Hann vildi ólmur fá sér tattú þrátt fyrir að forráðamenn Frankfurt hafi lagst gegn því. Hann fékk sýkingu í höndina, en eftir þessa skrautlegu uppákomu var hann sendur aftur til Man Utd.

Varela var ekki inn í myndinni hjá Jose Mourinho fyrir tímabilið og hefur því verið leyft að snúa aftur heim.

Varela var fyrsti leikmaðurinn sem David Moyes keypti til United, en ekki er hægt að segja að þessi kaup hafi verið sérstaklega góð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.