Huddersfield í ensku Championship deildinni hefur gert tveggja ára samning við framherjann Fraizer Campbell.
Campbell hefur verið án félags undanfarnar vikur eftir að samningur hans hjá Hull rann út í sumar.
Campbell hefur verið án félags undanfarnar vikur eftir að samningur hans hjá Hull rann út í sumar.
Campbell ólst upp hjá Manchester United en hann hefur meðal annars leikið með Tottenham, Sunderland, Cardiff og Crystal Palace á ferlinum.
Þessi 31 árs gamli leikmaður þekkir vel til í Championship deildinni en hann skoraði samtals 18 mörk þar með Hull á síðustu tveimur tímabilum.
Athugasemdir