Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 12. ágúst 2020 18:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Atalanta og PSG: Mbappe á bekknum
Mbappe ásamt goðsögninni Pele.
Mbappe ásamt goðsögninni Pele.
Mynd: Getty Images
Eftir rétt tæpan klukkutíma hefst fyrsti leikurinn í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Atalanta og Paris Saint-Germain eigast þá við en öll 8-liða úrslitin fara fram í Portúgal.

Kylian Mbappe byrjar á bekknum hjá PSG en hann er að stíga upp úr meiðslum. Parísarliðið óttaðist að hann yrði ekki í hóp í kvöld en hann byrjar á bekknum.

Marco Verratti er ekki með PSG vegna meiðsla og þá er Josip Ilicic ekki með Atalanta af persónulegum ástæðum. Það er stórt skarð fyrir Atalanta að fylla.

Hér að neðan má sjá byrjunarliðin.

Byrjunarlið Atalanta: Sportiello, Toloi, Caldara, Djimsiti, Hateboer, De Roon, Freuler, Gosens, Gomez, Pasalic, Zapata.
(Varamenn: Gelmi, Rossi, Sutalo, Palomino, Czyborra, Muriel, Piccoli, Malinovskyi, Da Riva, Castagne, Bellanova, Colley)

Byrjunarlið PSG: Navas, Silva, Kimpembe, Kehrer, Marquinhos, Bernat, Gueye, Herrera, Sarabia, Icardi, Neymar.
(Varamenn: Rico, Bulka, Mbappe, Paredes, Chupo-Moting, Diallo, Draxler, Bakker, Kalimuendo-Muinga, Dagba, Ruiz-Atil, Mbe Soh)

Sjá einnig:
Meistaraspáin - Heldur ævintýri Atalanta áfram gegn PSG?
Athugasemdir
banner
banner