Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 12. ágúst 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Haaland um Moukoko: Hann er miklu betri en ég var á þessum aldri
Erling Braut Haaland talar við um Moukoko
Erling Braut Haaland talar við um Moukoko
Mynd: Getty Images
Norski framherjinn Erling Braut Haaland hefur miklar mætur á hinum 15 ára gamla Youssouf Moukoko en hann telur að hann eigi eftir að ná langt á ferlinum.

Moukoko er fæddur í Kamerún en flutti ungur til Þýskalands og spilaði með unglingaliði St. Pauli áður en Borussia Dortmund fékk hann árið 2016.

Hann þykir einn efnilegasti framherji heims og byrjaði að æfa með aðalliðinu undir lok síðasta tímabils. Hann er í miklum metum hjá Dortmund og hefur skorað reglulega með unglinga- og varaliðinu.

Haaland er spenntur fyrir Moukoko og segir að leikmaðurinn eigi framtíðina fyrir sér.

„Hann er miklu betri en ég var á þessum aldri. Hann æfir með Dortmund og heldur í við alla. Ég var að spila með Bryne FK á þessum aldri svo það er ekki hægt að bera þetta saman," sagði Haaland.

„Það er erfitt að halda pressunni af honum þegar hann er svona góður. Ég aldrei séð 15 ára leikmann sem er svona góður," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner