Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mið 12. ágúst 2020 18:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Noregur: Ingibjörg með dramatísk sigurmark
Ingibjörg Sigurðardóttir.
Ingibjörg Sigurðardóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingibjörg Sigurðardóttir var hetja Vålerenga í endurkomusigri á Røa í norsku úrvalsdeildinni núna áðan.

Røa komst yfir í fyrri hálfleiknum og staðan í hálfleik var 1-0. Vålerenga mættu tvíefldar í seinni hálfleikinn og jöfnuðu metin á 52. mínútu.

Það var svo í uppbótartímanum þar sem Ingibjörg skoraði sigurmarkið. Dramatískt var það, en það er oft skemmtilegast.

Þetta er annað markið sem Ingibjörg skorar fyrir Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni. Hún gekk í raðir félagsins fyrir tímabilið frá Djurgården í Svíþjóð.

Ingibjörg er 22 ára gömul og á 30 A-landsleiki að baki. Hún er varnarmaður og getur bæði leikið sem miðvörður og bakvörður.

Athugasemdir
banner
banner
banner