Jermain Defoe hefur verið ráðinn til Tottenham þar sem hann mun þjálfa í akademíu félagsins og einnig starfa sem sendiherra félagsins.
Þessi 39 ára enski sóknarmaður hefur lagt skóna á hilluna en hann skoraði 143 mörk samtals fyrir Tottenham. Hann lék fyrir liðið 2004-2014 (með smá hléi 2008-2009 þegar hann var hjá Portsmouth).
Þessi 39 ára enski sóknarmaður hefur lagt skóna á hilluna en hann skoraði 143 mörk samtals fyrir Tottenham. Hann lék fyrir liðið 2004-2014 (með smá hléi 2008-2009 þegar hann var hjá Portsmouth).
Hann lék fyrir Sunderland, Bournemouth og Rangers áður en hann tilkynnti að í mars að ferli sínum væri lokið.
„Hann mun starfa náið með þjálfurum okkar og miðla sinni reynslu til ungra leikmanna frá U17 til U21 liðunum okkar," segir í yfirlýsingu Tottenham.
Athugasemdir