Fotbolti.net
12.09.16 - 10:15
Fótbolti.net

Hófið - Davíð Þór vaktaði Bödda löpp

Uppgjör 18. umferðar

Lífið í Garðabænum er erfitt um þessar mundir.

Lífið í Garðabænum er erfitt um þessar mundir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Fylkir galopnaði botnbaráttuna í liðinni umferð Pepsi-deildarinnar með því að vinna Víking Ólafsvík. FH tók enn eitt skrefið í átt að titlinum með því að gera 1-1 jafntefli gegn Breiðablik. Nú lyftum við glösum í morgunsárið á mánudegi og höldum lokahóf umferðarinnar.
Leikur umferðarinnar: Stjarnan 2 - 3 Valur
Stjörnumenn komust 2-0 yfir gegn Val en heitasta lið deildarinnar gafst ekki upp, enda að spila á móti kaldasta liði deildarinnar. Flautumark skilaði sigrinum á endanum og Valsmenn halda áfram á flugi! Pælið í því ef liðið hefði byrjað tímabilið á þessum nótum?
Meira um leikinn

Óánægjuraddir umferðarinnar: Garðabær
Það leynir sér ekki að menn eru pirraðir yfir gengi Stjörnunnar. Fjórir tapleikir í röð og hætta á að liðið komist ekki í Evrópusæti. Liðið fékk til sín öfluga leikmenn fyrir tímabilið en gengið verið óásættanlegt. Sæti Rúnars Páls þjálfara er líklega orðið heitt.

Mark umferðarinnar: Kristján Flóki Finnbogason
FH-ingar lentu undir gegn Breiðabliki en svöruðu með marki strax í næstu sókn. Það voru vinirnir Böddi löpp og Kristján Flóki sem bjuggu til markið. Böddi með frábæra sendingu á Flóka sem tók skotið í fyrsta. Sjáðu markið.

EKKI lið umferðarinnar:

Þessir áttu ekki sinn besta dag...

Heiðursverðlaun umferðarinnar: FH-ingar
Hinn árlegi LUV-dagur var haldinn hátíðlegur til minningar um FH-inginn mikla Hermann Fannar Valgarðsson. Falleg og skemmtileg hefð hjá félaginu.

Dómari umferðarinnar: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Fékk 10 fyrir frammistöðuna með flautuna í leik FH og Breiðabliks. Vilhjálmur er búinn að festa sig í flokki okkar bestu dómara.

Innkast umferðarinnar: Davíð Örn Atlason
Bakvörður Víkings fékk dæmt á sig rangt innkast í leiknum gegn Fjölni. Davíð kemur úr mikilli handboltafjölskyldu en systkini hans Arnór og Þorgerður Anna eru bæði í landsliðinu í handbolta. Atli Hilmarsson, faðir Davíðs, er reyndur handboltaþjálfari og hann hefur væntanlega hrist hausinn í stúkunni í Víkinni á laugardag þegar Davíð fékk dæmt á sig rangt innkast.

Spenna umferðarinnar: Botnbaráttan
Fylkismenn unnu Víking Ólafsvík og opnuðu botnbaráttuna upp á gátt. Það hefur orðið algjört hrun hjá Ólsurum á tímabilinu og markaskorun og stigasöfnun ÍBV er í lamasessi. Þróttur vann loksins fótboltaleik. „Ég sé ekki fyrir mér að ÍBV fái fleiri stig því þeir eiga svo erfiða leiki eftir,\" sagði Gregg Ryder, þjálfari Þróttar.

Sturluð staðreynd umferðarinnar:
ÍA hefur tapað báðum leikjum sínum gegn botnliði Þróttar. Ef Skagamenn hefðu unnið báða leikina væru þeir fjórum stigum á eftir toppliði FH...

Lærdómur umferðarinnar: Laugardagsleikir eru ekki málið
Það er margsannað að það þýðir ekki að spila í Pepsi-deildinni á laugardögum. Mætingin á laugardagsleiki er alltaf slök. Undir 500 manns á KR - ÍBV. „Maður var að hlusta á útvarpið hér og þar og maður heyrði ekki annað en talað um leik Manchester United og Manchester City. Maður var ekki minntur á að maður ætti leik í dag,\" sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari KR.

Beliebers umferðarinnar: Víkingar
Ef fókusinn er meira á Bieber en leik þá er þetta þannig. Ég er ekkert að kenna Bieber um. Þeir þurfa að laga ákveðna hluti. Ef þeir gera það þá er það fínt en ef ekki þá er það líka fínt. Þeir velja sjálfir hvort þeir vilja vera fótboltamenn eða finna sér nýja vinnu,\" sagði Milos Milojevic þjálfari Víkinga R. en hans menn fjölmenntu á tónleika Justin Bieber.

Vaktmaður umferðarinnar: Davíð Þór Viðarsson
Fyrirliði FH-inga gaf Bödda löpp bendingar meðan hann var í viðtali eftir leikinn gegn Breiðabliki... brot úr viðtalinu má sjá hér að neðan.

Boltaumræðan er undir #fotboltinet á Twitter

.@Boddi95 var vaktaður í viðtali í kvöld! Hann lofar hroka þegar (Staðfest) sviginn er mættur! #fotboltinet pic.twitter.com/vXRjVg3q6y

— Fotboltinet (@Fotboltinet) September 11, 2016


Flóki hefur bætt sig mikið í að skjóta strax þegar hann fær boltann. Það skilar mörkum. Extra sætt fyrir hann gegn Blikum. #fotboltinet

— Hafliði Breiðfjörð (@haflidib) September 11, 2016


Sveinn Aron líklega með klásúlu um að fá ekki að spila á þessu tímabili #fotboltinet

— Magnús Haukur (@Maggihodd) September 11, 2016


RPS out takk. #pepsi365 #fotboltinet #stjornuhrap

— Torfi Geir Símonar (@torfigeir) September 11, 2016


Stjarnan gegn KR, FH, Val og Blikum í sumar: 0 sigrar, 2 jafntefli, 6 töp. Markatalan 9-18. Algjörlega til skammar. #fotboltinet #pepsi365

— Viktor Hólmgeirsson (@ViktorHrafn) September 11, 2016


miðað við það leikjaprógram sem Eyjamenn og Fylkismenn eiga eftir á þá Fylkir ekki meiri möguleika á að halda sér #pepsi365 #fotboltinet

— konráð ólafur (@Konnieysteins) September 11, 2016


Fyrir tveimur umferðum talaði HH um að Valur vær besta liðið en núna eru FHingar langbestur og engin keppni fyrir þá? #pepsi365 #fotboltinet

— Ingólfur Birgir (@IngolfurBirgir) September 11, 2016


Brynjari Birni er drullusama um hvað Óla Jó finnst... #fotboltinet pic.twitter.com/DVdj5Loi9D

— Fotboltinet (@Fotboltinet) September 12, 2016


Konni var ánægður með sína menn eftir leik! #fotboltinet #lifi pic.twitter.com/UWRdaHl9cI

— Þróttur (@throtturrvk) September 11, 2016


Helvítin á #fotboltinet eru að koma þeirri tilgerðarlegu ambögu inn í tungumálið að menn skori ekki mörk heldur „fótboltamörk“.

— Stefán Pálsson (@Stebbip) September 11, 2016


Milos, þjálfari Víkings R., telur að tónleikar Justin Bieber hafi mögulega truflað sína menn í kvöld #fotboltinet pic.twitter.com/Spdm41l3vD

— Fotboltinet (@Fotboltinet) September 10, 2016

Fylkismenn eru farnir að sjá Pepsi-möguleika.

Fylkismenn eru farnir að sjá Pepsi-möguleika.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Dómaratríóið í Árbænum.

Dómaratríóið í Árbænum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

<b>Hófið</b> - Davíð Þór vaktaði Bödda löpp
Canon

Mynd: Fótbolti.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.