Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 12. september 2021 23:28
Brynjar Ingi Erluson
Lukaku hættur að renna sér á hnjánum
Romelu Lukaku
Romelu Lukaku
Mynd: EPA
Romelu Lukaku, framherji Chelsea, ætlar að hætta að fagna með því að renna sér á hnjánum eftir atvik helgarinnar gegn Aston Villa.

Lukaku skoraði tvívegis í 3-0 sigri á Villa en hann fagnaði fyrra markinu með því að renna sér á hnjánum. Fagnið var stutt og virtist hann hafa fundið til við að fleygja sér á hnén og mun því ekki endurtaka leikinn.

Landi hans, Eden Hazard, sagði í viðtali árið 2018, er hann var á mála hjá Chelsea að hann væri hættur að fagna á þennan hátt þar sem þetta var of sársaukafullt.

„Ég er hættur að renna mér á hnjánum eftir fagnið í gær," sagði Lukaku á Twitter.


Athugasemdir
banner