Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 12. september 2021 16:39
Brynjar Ingi Erluson
Salah skoraði 100. mark sitt í úrvalsdeildinni
Mohamed Salah fagnar marki sínu gegn Leeds
Mohamed Salah fagnar marki sínu gegn Leeds
Mynd: EPA
Egypski sóknarmaðurinn Mohamed Salah er kominn með 100 mörk í ensku úrvalsdeildinni en hann tók forystuna fyrir Liverpool sem er að vinna Leeds, 1-0.

Salah skoraði markið á 20. mínútu eftir fyrirgjöf Trent Alexander-Arnold.

Þetta var 100. mark hans í ensku úrvalsdeildinni og hefur hann gert það í aðeins 162 leikjum.

Aðeins fjórir leikmenn hafa skorað 100 mörk í færri leikjum en það eru þeir Alan Shearer, Thierry Henry, Sergio Aguero og Harry Kane.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner