12.09.26 - 11:27
Brynjar Ingi Erluson
Markaskorari Como elskar að eyða tíma með kettinum sínum og spila billjarð

Tasos Douvikas

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Tasos Douvikas

Mynd: EPA
Como hefur gert það gott undanfarin ár og Cesc Fabregas fundið uppskriftina að árangri með skynsamlegum leikmannakaupum, en gríski framherjinn Tasos Douvikas er einn þeirra sem hafa reynst félaginu vel.
Douvikas er 27 ára framherji sem lék með Asteras Tripolis og Volos í heimalandinu Grikklandi, en bæði félög hafa verið í baráttu í neðri hluta efstu deildar. Þar lét hann að sér kveða, var valinn besti ungi leikmaðurinn árið 2018 og í lið ársins 2021.
Þaðan lá leiðin til Utrecht í Hollandi og síðar Celta Vigo áður en hann gekk til liðs við Como á síðasta ári. Hann skoraði 17 mörk í 44 leikjum á tímabilinu þegar Como tryggði sér sæti í Meistaradeildinni í fyrsta sinn í sögu félagsins í vor.
Douvikas skoraði svo sitt fyrsta Meistaradeildarmark í 4-1 sigrinum á Leipzig á dögunum og er kominn með þrjú mörk í fjórum leikjum í öllum keppnum á þessu tímabili.
„Ég er ánægður. Framherjar lifa á mörkum og því að halda takti en aðalmálið er að hjálpa liðsfélögunum í hverjum einasta leik, ekki bara með því að skora,“ sagði Douvikas.
Hann vill þó ekki fara að ræða mögulega titilbaráttu á Ítalíu þótt vel hafi gengið.
„Nei, það er allt of snemmt að fara út í þá umræðu enda mörg önnur lið í deildinni með mikil gæði.“
Douvikas sækist lítið eftir sviðsljósinu og vill helst einbeita sér að æfingum og fótboltanum, en utan vallar finnst honum gott að eyða tíma með kettinum sínum og spila billjarð.
„Ég reyni að halda mig svolítið út af fyrir mig og einbeita mér að vinnunni, enda eyði ég miklum tíma á æfingasvæðinu. Það gefur mér orku en það er alltaf hætta á að athyglin trufli mann og stígi manni til höfuðs.“
„Ég gef mér alltaf tíma fyrir köttinn minn Graca og billjarðkjuðinn er enn í notkun, en umfram allt hef ég uppgötvað hvað það er fallegt að upplifa fótboltann af þessari ástríðu á hverjum degi,“ sagði markaskorarinn.