12.10.16 - 18:00
Magnús Már Einarsson
Kieran Richardson til Cardiff (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Aron Einar Gunnarsson hefur fengið nýjan liðsfélaga en Cardiff hefur samið við Kieran Richardson.
Richardson er fjölhæfur leikmaður sem getur spilað á kanti, í bakverði og á miðjunni.
Hinn 32 ára gamli Richardson var samningslaus en hann yfirgaf Aston Villa í sumar.

Richardson hefur einnig leikið með Manchester United, Sunderland og Fulham á ferlinum.
Neil Warnock, nýráðinn stjóri Cardiff, er að safna liði þessa dagana en í gær samdi hann við Marouane Chamakh, fyrrum framherja Arsenal.