Fotbolti.net
12.10.16 - 18:17
Jóhann Ingi Hafþórsson

Steve Bruce nýr stjóri Aston Villa (Staðfest)

Steve Bruce er tekinn við Villa.

Steve Bruce er tekinn við Villa.

Canon

Mynd: Getty Images

Steve Bruce hefur tekið við þjálfun Aston Villa en þetta var staðfest nú í kvöld.
Bruce hefur verið atvinnulaus síðan hann yfirgaf Hull City í sumar en hann tekur við af Roberto Di Matteo sem var rekinn á dögunum.

Villa er sem stendur í 19. sæti Championship deildarinnar en fyrsti leikur Bruce er gegn Wolves á laugardag.

„Þetta er frábært tækifæri fyrir mig. Aston Villa er eitt af stóru félögunum á Englandi og að fá þetta tækifæri er rosalegt fyrir mig,\" sagði Bruce í samtali við heimasíðu Aston Villa.

Bruce hefur komist upp úr Championship deildinni í fjórgang og fær hann það verðuga verkefni að koma Villa aftur í deild þeirra bestu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.