Fotbolti.net
12.10.16 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Steve McClaren tekur við Derby (Staðfest)

Ráðinn aftur til Derby - 17 mánuðum eftir að hafa verið rekinn.

Ráðinn aftur til Derby - 17 mánuðum eftir að hafa verið rekinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Steve McClaren hefur verið ráðinn nýr stjóri Derby County í Championship deildinni. Hann tekur við af Nigel Pearson sem hætti á dögunum.

McClaren, sem er fyrrum þjálfari enska landsliðsins, skrifaði undir samning við Derby sem gildir til sumarsins 2018.
McClaren þekkir vel til hjá Derby því hann stýrði liðinu í tæp tvö ár áður en hann var rekinn í maí 2015.

Mclaren var nálægt því að koma Derby upp í úrvalsdeildina á sínum tíma en hann fór síðan til Newcastle.

Dvöl McClaren hjá Newcastle var ekki góð en hann var rekinn fyrr á þessu ári.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.