Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 12. október 2018 17:00
Ívan Guðjón Baldursson
Guðrún Arnar segir upp samningi sínum við Breiðablik (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðrún Arnardóttir, 23 ára varnarmaður Breiðabliks í Pepsi-deildinni, hefur sagt upp samningi sínum við félagið.

Þetta staðfesti Brjánn Guðjónsson, umboðsmaður hennar í samtali við Fótbolta.net.

Guðrún átti mjög gott sumar og var valinn í úrvalslið tímabilsins er Breiðablik hampaði Íslandsmeistaratitlinum.

Guðrún hóf ferilinn með Selfossi árið 2011 og var fengin yfir til Blika þar sem hún hefur verið í lykilhlutverki undanfarin sex ár.

Síðustu ár hefur hún einnig stundað nám við háskóla í Bandaríkjunum og gert góða hluti í háskólaboltanum þar.

Guðrún á 135 meistaraflokksleiki að baki hér á landi og hefur leikið 5 A-landsleiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner