Fotbolti.net
12.10.26 - 16:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Allt sem Maggi sagði við mig raungerðist"

Átti mjög gott tímabil með Aftureldingu og var valinn í lið ársins í Lengjudeildinni.

Átti mjög gott tímabil með Aftureldingu og var valinn í lið ársins í Lengjudeildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Óðinn Bjarkason var á dögunum keyptur aftur til KR eftir að hafa verið seldur til Aftureldingar síðasta vetur.

Óðinn er sóknarmaður sem fæddur er árið 2006. Hann skoraði 14 mörk í Lengjudeildinni í sumar og tvö í bikarnum þegar Afturelding fór upp í Bestu deildina aftur og komst í úrslitaleik Mjólkurbikarsins.

Óðinn ræddi við Fótbolta.net um tímann í Aftureldingu.
Óðinn Bjarka: Sá Óskar hringja og hélt ég væri í vandræðum
TENGT EFNI

Óðinn Bjarka: Sá Óskar hringja og hélt ég væri í vandræðum

„Maggi hringir í mig og ég átti frábært samtal við hann og ég fann eiginlega strax hjá mér að þetta var eitthvað sem ég vildi gera og allt sem að Maggi sagði við mig raungerðist," sagði Óðinn í viðtalinu sem má nálgast í spilaranum neðst.

„Við ætluðum að vinna deildina og við ætluðum að fara langt í bikar, spila fallegan fótbolta. Þessi tími sem ég var þarna, ég er gríðarlega þakklátur fyrir hann og Maggi hjálpaði mér og þjálfarateymið að þróast sem leikmaður og verða miklu betri en ég var."

Var þetta ekki bara einmitt einum leik frá því að vera algjört, algjört draumatímabil?

„Jú, í rauninni. Ef þú hefðir skrifað þessa sögu sem handrit þá hefðirðu ekki getað skrifað þetta mikið öðruvísi, klárum deildina á bæjarhátíðinni og komumst í bikarúrslit. Þetta var í rauninni einum leik frá því að vera bara draumatímabilið."

Þú ert sóknarmaður, hver myndirðu segja að væri þín besta staða á vellinum?

„Ég náttúrulega spilaði eiginlega bara á vinstri kanti hjá Aftureldingu og það gekk helvíti vel en ég myndi segja að fremstu þrjár henta mér mjög vel. Maður hefur verið ágætlega markheppinn, allavegana á síðasta tímabili, og mér finnst frábært líka að spila sem fremsti maður," sagði Óðinn.
„Allt sem Maggi sagði við mig raungerðist"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Maggi, Magnús Már Einarsson, er þjálfari Aftureldingar.

Maggi, Magnús Már Einarsson, er þjálfari Aftureldingar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óðinn Bjarka: Sá Óskar hringja og hélt ég væri í vandræðum

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.