Óðinn Bjarka: Sá Óskar hringja og hélt ég væri í vandræðum

Mættur aftur í uppeldisfélagið.

Mynd: KR

Óskar Hrafn Þorvaldsson er þjálfari KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óðinn átti mjög gott tímabil með Aftureldingu og var í liði ársins í Lengjudeildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Í leik með KR á undirbúningstímabilinu 2024.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gríðarlega þakklátur fyrir tímabilið í ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mættur aftur í uppeldisfélagið.

Mynd: KR
Hann ræddi við Fótbolta.net um endurkomuna í KR.
„Þetta kom frekar snöggt til eftir bikarúrslitin. Þá hringir Óskar (þjálfari KR) í Magga (þjálfara Aftureldingar) á þriðjudegi og svo fæ ég símtal bara á leiðinni úr skólanum. Ég horfi á símann minn og sé 'Óskar Hrafn' og ég fékk strax svona tilfinningu eins og ég væri í einhverjum vandræðum."
„En svo fattaði ég að þetta væru bara gleðifréttir og ég talaði við hann og hann bara spurði hvort að ég hefði áhuga að koma aftur. Svo bara fóry samningsviðræður af stað og ég talaði við Magga og hugsaði mig aðeins um, talaði við mitt fólk. Á endanum ákvað ég að fara aftur í sögufrægasta og stærsta klúbb landsins. Svo líka þegar Óskar Hrafn hringir í þá segir maður ekki nei."
Var aldrei að fara segja nei við KR
Erfitt kannski líka fyrir KR-ing að segja nei?
„Það hefur alltaf verið draumur sem að var lítill strákur að spila fyrir KR: uppeldisklúbburinn sem þú elst upp í og þú horfir á stjörnunar að spila. Þannig það hefði verið erfitt að segja nei við uppeldisklúbbinn þótt Afturelding eigi stað í hjarta manns núna og sérstaklega á þeim stað sem þeir eru á núna. Afturelding er frábær klúbbur og ég get ekki beðið eftir að fylgjast með þeim í Bestu deildinni, en ég var aldrei að fara að segja nei við KR."
Sér gríðalegan mun á liðinu
Þú ert byrjaður aðeins að æfa með þeim núna áður en tímabilið klárast. Sérðu einhvern mun núna á KR og frá því þú varst síðast?
„Ég náttúrulega æfði alla daga með KR fyrir tveimur árum. Svo fer ég á lán í ÍR og síðan, síðan kom ég aftur og æfði með þeim í mánuð eftir lánsdvölina. En ég sé gríðarlega mun núna á liðinu. Það hefur náttúrulega alltaf verið ákefð og flottur fótbolti á æfingum, en núna finnst mér þetta komið á annað level, sérstaklega með ákefðina að gera. Ef þú ert ekki alveg spot on, þá ertu bara jarðaður og þá er maður mættur í þig. Ég sé klárlega mun núna og það kannski sýnir sig líka bara á stigatöflunni hvernig velgengnin er núna miðað við í fyrra, þótt að kannski það er ekkert gífurlega mikill munur, en það er vissulega munur."
Unun að horfa á KR
Hvernig hefur verið að fylgjast með liðinu í sumar?
„Þetta er náttúrulega bara unun að horfa á þetta. Maður bara kitlar í skinninu að spila þennan fótbolta. Eins og bara flestir segja að KR spili langskemmtilegasta fótboltann. Það sýnir sig bara í öllu, hvernig hérna sérfræðingar tala og bara hérna hinn venjulegi gómur sem er að horfa á fótbolta, hann bara elskar að horfa á þetta. Það er bara búin að vera algjör veisla að horfa á þetta."
Gríðarlega þakklátur fyrir að hafa farið í Aftureldingu
Hvernig kom til að þú endaðir í Aftureldingu?
„Það var einhver áhugi frá einhverjum öðrum liðum í Lengjudeildinni og ég hafði alveg um eitthvað að velja. Það var þannig að Óskar sendi mér skilaboð þegar ég var nýkominn úr lokaprófi, síðasta lokaprófinu. Ég hélt að stressið yrði búið eftir prófin, en svo var ekki. Ég talaði við Óskar, átti eitt ár eftir af samningnum og hann sagði bara: Minn tími væri að fara og finna eitthvað annað lið sem ég er bara gríðarlega þakklátur fyrir í dag út af ef ég hefði ekki gert það þá hefði ég ekki verið kominn á stað sem ég er í dag og það hjálpaði mér að þróast sem leikmaður," segir Óðinn sem ræðir nánar um Aftureldingu í viðtalinu.
Alvöru vinnan byrjar núna
Það það er alveg ljóst að þú spilar ekki keppnisleik fyrir KR fyrr en á næsta ári. Hvernig er hugarfarið varðandi framtíðina?
„Eins og ég hef sagt þá í rauninni byrjar alvöru vinnan bara núna. Ég er kominn í gríðarlega flott umhverfi og það verður gríðarlega spennandi. Ég ætla að leggja mikla vinnu á mig í vetur, koma mér í mitt besta form. Þú þarft að vera í frábæru formi til að spila fyrir KR og maður leggur inn allt þetta auka sem maður getur gert. Þetta leggst gríðarlega vel í mig og ég get ekki beðið eftir að byrja að spila," segir Óðinn.

Óskar Hrafn Þorvaldsson er þjálfari KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óðinn átti mjög gott tímabil með Aftureldingu og var í liði ársins í Lengjudeildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Í leik með KR á undirbúningstímabilinu 2024.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gríðarlega þakklátur fyrir tímabilið í ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
