Fotbolti.net
12.11.12 - 20:29
Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi Guðmundsson í Fylki (Staðfest)

Tryggvi í búningi Fylkis í kvöld.

Tryggvi í búningi Fylkis í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi Guðmundsson er genginn í raðir Fylkis frá ÍBV en hann skrifaði undir eins árs samning við félagið í Fylkisheimilinu rétt í þessu.
Ljóst var eftir tímabilið að Tryggvi myndi yfirgefa ÍBV og í kjölfarið skoðaði hann sín mál.

Á endanum voru Fylkir og Breiðablik eftir í myndinni en nú er ljóst að Tryggvi fer í Árbæinn.

Valur, Þór og Þróttur höfðu einnig sýnt áhuga á að fá þennan mikla markaskorara í sínar raðir.

Tryggvi er 38 ára en hann sló markametið fræga í sumar og hefur skorað 129 mörk í efstu deild á ferli sínum.

Tryggvi er þriðji leikmaðurinn sem Fylkir fær í vetur. Áður hafði Sverrir Garðarsson komið frá Haukum og Kristján Páll Jónsson frá Leikni.
Tryggvi skrifar undir samninginn.

Tryggvi skrifar undir samninginn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.