Fotbolti.net
12.11.16 - 07:15
Hafliði Breiðfjörð

Alexander Aron í Hvíta Riddarann (Staðfest)

Alexander Aron í Hvíta Riddarann (Staðfest)
Canon

Mynd: Hvíti Riddarinn

Alexander Aron Davorsson hefur gengið til liðs við Hvíta Riddarann frá Aftureldingu.
Alexander sem var markahæstur í 2.deild árið 2014, hefur verið duglegur að raða inn mörkum fyrir Aftureldingu í gegnum tíðina, hann er nú kominn til Hvíta Riddarans þar sem hann hóf sinn meistaraflokksferil.

Félagið væntir mikils af jafn góðum leikmanni og Alexander Aron er, það efast enginn um hans knattspyrnuhæfileika.

Þá er félagið stolt að því að Alexander Aron valdi félagið fram yfir mörg önnur lið sem höfðu sýnt honum áhuga, það ber þess þá merki um þann metnað sem lagður hefur verið í starfið hjá félaginu undanfarin ár að fá jafn sterkan leikmann og Alexander Aron.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.