12.11.16 - 13:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bjarni Þórður aftur í Fylki (Staðfest)

Bjarni Þórður er kominn aftur í Fylkistreyjuna

Mynd: Fylkir

Knattspyrnudeild Fylkis sendi frá sér yfirlýsingu nú áðan þar sem greint er frá því að markvörðurinn Bjarni Þórður Halldórsson sé mættur aftur í Árbæinn. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við Fylki í dag.
Bjarni, sem er 33 ára gamall, spilaði með Aftureldingu í sumar, en hann er uppalinn í Fylki og á að baki 111 leiki fyrir félagið í efstu deild. Hann ætlar að taka slaginn með Fylki í Inkasso-deildinni næsta sumar.

„Það er frábært að fá Bjarna heim, uppalinn í félaginu og með mikla reynslu. Það er mikill styrkur að fá leikmenn aftur í félagið, það segir okkur að hér líður þeim vel. Nú erum við komnir með tvo öfluga markmenn og það skiptir okkur miklu máli í baráttunni sem framundan er,“ sagði Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis, við heimasíðu félagsins.
„Ég er gífurlega ánægður og stoltur af því að skrifa undir samning við Fylki í dag og hlakka mikið til þess að taka þátt í stórafmælisárinu 2017. Það er von mín og trú að á þessum undarlegu tímum muni allir Árbæingar fylkja sér á bak við liðið og styðja það sem aldrei fyrr. Í sameiningu munum við sjá til þess að sumarið verði eftirminnilegt, fullt af gleði og að stórveldið Fylkir komi sér aftur í fremstu röð. Fylkir - Stoltur - Alltaf,“ sagði Bjarni Þórður um félagsskiptin.
Fylkir féll úr Pepsi-deildinni í sumar eftir að hafa endað í næst neðsta sæti deildarinnar með 19 stig úr 22 leikjum. Liðið leikur því í næst efstu deild í fyrsta sinn síðan fyrir aldamót. Helgi Sigurðsson tók við liðinu í síðasta mánuði og hann stefnir á að stýra liðinu aftur upp í deild þeirra bestu.