Fotbolti.net
12.11.16 - 08:00
Hafliði Breiðfjörð

Jói Ben snýr aftur í Fjarðabyggð (Staðfest)

Jóhann Ragnar Benediktsson í leik með Fjarðabyggð.

Jóhann Ragnar Benediktsson í leik með Fjarðabyggð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Ragnar Benediktsson mun leika með Fjarðabyggð í 2. deild næsta sumar en þetta kom fram í tilkynningu frá félaginu í gær.
Jóhann Ragnar sem er 36 ára lék síðast með Fjarðabyggð í 1. deildinni 2015 alls 9 leiki.

Jóhann hefur leikið samtals 242 leiki í deild og bikarkeppni og skorað í þeim 40 mörk.

„Gaman verður að sjá Jóhann reima á sig skóna aftur og ljóst að reynsla hans og styrkur mun án efa koma Fjarðabyggð til góða í 2. deildinni,\" segir í tilkynningu félagsins.

Dragan Stojanovic tók við þjálfun Fjarðabyggðar í haust en liðið féll úr 1. deildinni í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.