12.11.16 - 16:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Slobodan Milisic tekur við KF (Staðfest)

Slobodan \"Míló\" Milisic

Mynd: Leiknir.com - Matthías Ægisson

Slobodan \"Míló\" Milisic

Mynd: Leiknir.com - Matthías Ægisson
Knattspyrnufélag Fjallabyggðar (KF) er búið að ráða Slobodan \"Míló\" Milisic í starf þjálfara meistaraflokks.
Hann skrifaði undir tveggja ára samning við KF, en hann tekur við liðinu af Halldóri Ingvari Guðmundssyni og Þórði Birgissyni, sem tóku tímabundið við liðinu í ágúst. Þeir spiluðu líka með liðinu, en þeir tóku eins og áður segir tímabundið við þegar Jón Stefán Jónsson var rekinn.

Nú er Míló tekinn við, en hann hefur undanfarið þjálfað 2. flokk hjá KA. Hann kom fyrst hingað til lands árið 1994 og spilaði þá með Leiftri í 2. deild. Hann spilaði einnig með Skagamönnum og KA, en hann hefur einnig þjálfað síðarnefnda liðið.
KF endaði í neðsta sæti 2. deildar karla í sumar og liðið mun því spila í 3. deild næsta sumar. Stefnan er eflaust sett á að komast beint aftur upp um deild.