12.11.17 - 20:42
Ívan Guðjón Baldursson
Alvaro Montejo í Þór (Staðfest)

Montejo (til hægri) varð bikarmeistari með ÍBV í ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór hefur fengið Alvaro Montejo Calleja til liðs við sig frá ÍBV, en hann lék 15 leiki fyrir félagið í Pepsi-deildinni í sumar.
Alvaro er spænskur framherji og gerði þrjú mörk í sumar, tvö í deild og eitt í bikar, en náði ekki að vinna sér inn fast sæti í lið Eyjamanna.

Alvaro kom fyrst til Íslands 2014 og gerði 18 mörk í 23 leikjum fyrir Hugin. Hann kom aftur til landsins til að spila fyrir Fylki seinni part sumarsins 2016 og gerði þar eitt mark í sjö leikjum í Pepsi-deildinni.
Alvaro getur spilað á kanti, sem fremsti maður og fyrir aftan fremsta mann.
Þá gekk Admir Kubat einnig í raðir Akureyringa í fyrradag, en Þór endaði um miðja Inkasso-deild í sumar og stefnir á að komast upp í deild þeirra bestu á næsta ári.