Fotbolti.net
12.11.26 - 18:43
Brynjar Ingi Erluson

Ekkert samkomulag um Sage

Ekkert samkomulag um Sage
Canon

Mynd: EPA

Franski blaðamaðurinn Fabrice Hawkins segir að Lens hafi ekki náð samkomulagi við Pierre Sage um að hann snúi aftur til félagsins.
Crystal Palace rak Sage úr starfi í dag eftir aðeins sextán leiki við stjórnvölinn, en Foot Mercato hefur greint frá því að hann sé á leið aftur til Lens.

Yannick Cahuzac var rekinn eftir hörmulega byrjun á tímabilinu og vill forseti Lens ólmur fá Sage aftur til félagsins. Sage náði frábærum árangri með liðið á síðustu leiktíð, gerði það að bikarmeisturum og kom því í titilbaráttu áður en hann hélt til Palace.

Sage er hins vegar ekki alveg sannfærður um að snúa aftur, þótt hann hafi átt góð samtöl við forseta félagsins. Ekkert samkomulag er því í höfn enn sem komið er.

Fabrizio Romano hefur greint frá því að Sage vilji taka sér frí frá fótboltanum og íhuga næstu skref vandlega.

Hawkins segir jafnframt að Lens sé þegar farið að skoða aðra kosti ef Sage ákveður að hafna því að snúa aftur til félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.