12.11.26 - 18:03
Brynjar Ingi Erluson
Nefnir tvær kröfur sem Pochettino verður að gera - „Þetta er versta varnarlína deildarinnar“

Mauricio Pochettino

Mynd: EPA

Gary Neville segir United með verstu vörn deildarinnar

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino

Mynd: EPA
Gary Neville, spekingur á Sky Sports, segir að Mauricio Pochettino verði að gera miklar kröfur í viðræðum sínum við Manchester United.

TENGT EFNI
Leikmenn United vildu annan stjóra en Pochettino
United hefur rekið Michael Carrick eftir tæpt ár í starfi og bendir allt til þess að Pochettino taki við keflinu.
Neville segir að félagið verði að styðja vel við bakið á nýja stjóranum og að Pochettino ætti að setja skýr skilyrði áður en hann skrifar undir samning.
Hann telur United vera með verstu vörn ensku úrvalsdeildarinnar og segir nauðsynlegt að fá tvo varnarmenn í janúar. Þá verði Pochettino einnig að tryggja sér myndarlega fjárhæð til leikmannakaupa næsta sumar.
„Ef ég væri Mauricio Pochettino myndi ég tryggja stöðu mína eins vel og mögulegt væri. Hann mun væntalega setja væna starfslokagreiðslu og það þarf að vera skýrt í samningnum. En í öðru lagi þarf hann tvo varnarmenn í janúar.“
„Hann verður að krefjast þess að fá tvo varnarmenn og fjármagn til að styrkja liðið næsta sumar. Hann þarf að biðja um myndarlega upphæð til leikmannakaupa og félagið verður að verða við því. Annars ætti hann ekki að taka starfið,“ sagði Neville í þættinum Overlap.
Neville sparaði ekki stóru orðin þegar hann ræddi varnarleik United og sagðist hreinlega ekki trúa því hversu illa félagið væri statt á þeim hluta vallarins.
„Þetta er versta vörn ensku úrvalsdeildarinnar. Ef þú horfir á varnarlínuna sem kláraði leikinn á sunnudag, þá var Dalot í vinstri bakverði, Mazraoui í hægri og Yoro og Heaven í miðri vörn.“
„Þetta er líklega versta fjögurra manna varnarlína deildarinnar. Ég veit ekki um neina verri vörn í úrvalsdeildinni eins og staðan er í dag. Ég á eiginlega erfitt með að trúa því hvernig United endaði með þessa vörn,“ sagði Neville ennfremur.